held at Listasafn Ísafjarðar 2023 and Íslensk grafík – IPA Gallerí, Hafnarhúsi, Reykjavík 2024.
In Guðbjörg Lind Jónsdóttir’s art, calm resides amidst the tumult, a shifting peace where everything is nature and nature is myriad and never quite still.
We sense peace in the gleam of light on the surface of the ocean, in perilous peaks of waves, in a bank of fog on the horizon, in the twilight, in the rigorous circular forms of fish-farm pens, and in an abandoned boat that waits on the shoreline like a yearning for home.
Peace also dwells in the sets of coffee-cups on the floor. These are old friends that generations have handled with care – the cups as miscellaneous as the lips that touched them, and on closer scrutiny it transpires that some still contain the last drops of quality times past and of fortunes read from the dregs, some of which have yet to be fulfilled.
Calm becomes a performance.
Steinunn G. Helgadóttir
—
Í list myndlistarkonunnar Guðbjargar Lindar Jónsdóttur dvelur lognið í miðju skarkalans, síbreytilegur friður þar sem allt er náttúra og náttúran er allskonar og aldrei alveg kyrr.
Við skynjum friðinn í birtuslæðu á haffletinum, viðsjárverðum öldutoppum, þokubakka við sjóndeildarhringinn, ljósaskiptum, formföstum hringjum sjóeldiskvía og yfirgefna bátnum sem bíður í flæðarmálinu eins og heimþrá.
Friðurinn býr líka í kaffistellunum á gólfinu. Þau eru gamlir kunningjar sem kynslóðirnar hafa umgengist af varúð, bollarnir jafn mismunandi og varirnar sem snertu þá og við nánari athugun reynast sumir þeirra líka varðveita síðustu dropa liðinna gæðastunda og spádóma sem sumir eiga enn eftir að rætast.
Kyrrðin verður að performans.
Steinunn G. Helgadóttir